halló halló, ég skil ekki hvað fólk er að heimta það að maður
skrifi eitthvað hérna inn ef það kvittar enginn fyrir komuna þegar
þeir lesa ruglið í mér...
en allavega þá fórum við til eyja um verslunarmannahelgina, það
var svo geðveikt gaman, við vorum í heimahúsi og skemmtum okkur
konunglega í góða veðrinu sem lék við okkur. við fórum með herjólfi
seint á föstudagskvöldinu, það var ekkert sérstaklega gott í sjóin
en ekkert af okkur ældi (annað er að segja um restina af liðinu um
borð) dorothy sótti okkur niður á bryggju og við fórum heim til
hennar að hafa fataskipti og svo var farið niður í dal að hitta
allt fólkið. annars var laugardagskvöldið lang skemmtilegast að mér
fannst, ég var svolítið mikið drukkinn og var auðvitað bara
skemmtilegust á svæðinu
þynkan á sunnudeginum var samt ekkert til
að hrópa húrra fyrir, ég held hreinlega að ég hafi aldrei upplifað
aðra eins þynnku... ég ákvað svo að vera edrú á sunnudagskvöldið og
vera hress og fín í herjólfi á mánudeginum, sem ég sá sko ekki
eftir.
annars var gullmolinn okkar hjá ömmu sinni á meðan við fórum
þarna yfir, og við vorum í stöðugu sambandi við þær, það gekk alveg
eins og í sögu, mín bara ekkert erfið og hagaði sér eins og engill.
takk mamma mín fyrir að hafa passað fyrir mig
það var samt
æðislegt að hitta hana aftur eftir þessa ferð, hún brosti allan
hringinn og hló rosalega
svo í dag fórum við öll í brúðkaup hjá margréti frænku og óla
(til hamingju dúllurnar mínar) það var rosalega gaman, æðislega
falleg athöfn og vel heppnuð veisla. júlía var svo vær og góð
allann tíman...
en þangað til næst....