jæja komin tími á nýja færslu, við júlía fórum í fyrradag að labba, löbbuðum niður laugaveginn og niður á tjörn með maríu og evu sól, það gáfum við bra bra brauð svo í gær löbbuðum við um grasagarðinn í góða veðrinu það var rosalega fínt, í dag kíktum við í kringluna með dísu og svo á rúntinn og í ikea með maríu og evu sól, svo komum við heim og hittum jóa og elduðum góðan mat og tókum svo alla íbúðina í gegn jói braut rakspíraglas (af hræðilegum rakspíra frá hirti) og íbúðin angar annars fórum við í bústaðinn síðustu helgi eða bara eina nótt, komum heim á laugardaginn, á laugardags nóttina kom köttur inn hérna og tók bleiku hekluðu peysuna hennar júlíu með sér út, ég fann hana úti í blómabeði... ansk köttur. ég vaknaði líka í fyrrinótt þá var þessi köttur komin upp í rúmið mitt og ég get svo svarið það að hann var á leiðinni ofaní vögguna hjá júlíu... ég elti hann fram alveg brjáluð, en hann náði að komast út ég veit ekki hvað ég hefði gert ef ég hefði náð honum. en ég bið að heilsa í bili...
og svo ALLIR að kvitta takk...
Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.
Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.