bloggsvæðið mitt

hér stendur allt í stað:)

01.10.2007 20:38:55 / bubba

orðin svom stór:)

héðan er lítið að frétta annað en að ég átti afmæli 25 sept og hélt uppá það á laugardaginn:) það var alveg geggjað gaman:) takk æðislega fyrir mig.

annars er ég bara alltaf í vinnunni, það er rosalega gaman að vera byrjuð að vinna aftur, Júlía er hjá dagmömmu á daginn en amma hennar sækir hana yfirleitt um 2 og er með hana þangað til ég er búin að vinna. hún er orðin svo stór þessi litla dúlla:) svo er það bara krossari og læti á næsta leiti;) en allavega þangað til næst:)

og svo kvitta 


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.09.2007 19:54:15 / bubba

vondar mömmur!

 Var mamma þín vond! Mín var það!
Við áttum verstu mömmu í heiminum !
Þegar aðrir krakkar borðuðu nammi í morgunmat fengum við
hafragraut.
Þegar aðrir krakkar fengu pepsí og súkkulaði fyrir hádegismat fengum við samlokur.
Og menn geta bara rétt ímyndað sér hvað hún gaf okkur í
kvöldmat,-allskonar MAT.
Mamma vildi alltaf vita hvar við vorum, ALLTAF, það hefði mátt halda að við værum í fangelsi. Hún vildi vita hverjir voru vinir okkar og hvað við vorum að gera með þeim.
Hún krafðist þess að ef við segðumst ætla að fara eitthvað í klukkutíma þá væri það aldrei meira en klukkutími.
Þegar það var FRÍ í skólanum þurftum við að vinna. Við
þurftum að þvo diskana, búa um rúmin, læra að elda, þvo þvottinn og annast önnur leiðinleg störf. Við héldum að hún lægi vakandi á nóttunni bara til að pæla út hvað hún ætti að láta okkur gera daginn eftir
Hún lét okkur alltaf segja sannleikann, allann sannleikann og ekkert nema sannleikann.
Þegar við vorum unglinga, gat hún lesið hugsanir okkar.
Þá var lífið ERFITT !
Þegar allir fengu að fara á djammið og skemmta sér 12 eða 13 ára, fengum við ekki að gera neitt fyrr en við vorum 16. ára.
Mömmu vegna misstum við af fjölda mörgu og miklu sem aðrir krakkar gerðu.
Ekkert okkar hefur verið tekin fyrir að stela úr búðum,
eyðileggja fyrir öðru fólki eða verið tekin fyrir nokkurt afbrot af neinu tagi.
ALLT henni að kenna.
Við urðum aldrei full, kunnum ekki að reykja, fengum ekki að vera úti allar nætur og misstum því af að gera svo fjöldamargt sem unglingar annars fá að gera.
Á sunnudögum þurftum við að fara í kirkju, og við misstum aldrei af messu.
Núna erum við flutt að heiman.
Guð-hrædd, menntuð og gott fólk.
Við gerum okkar besta að vera vondir foreldrar eins og mamma okkar var.
Ég held að það sé það sem er að í heiminum í dag.
Það er bara ekki nóg af vondum mömmum lengur.

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.08.2007 23:41:23 / bubba

lítið að frétta...

halló halló, ég skil ekki hvað fólk er að heimta það að maður skrifi eitthvað hérna inn ef það kvittar enginn fyrir komuna þegar þeir lesa ruglið í mér...

en allavega þá fórum við til eyja um verslunarmannahelgina, það var svo geðveikt gaman, við vorum í heimahúsi og skemmtum okkur konunglega í góða veðrinu sem lék við okkur. við fórum með herjólfi seint á föstudagskvöldinu, það var ekkert sérstaklega gott í sjóin en ekkert af okkur ældi (annað er að segja um restina af liðinu um borð) dorothy sótti okkur niður á bryggju og við fórum heim til hennar að hafa fataskipti og svo var farið niður í dal að hitta allt fólkið. annars var laugardagskvöldið lang skemmtilegast að mér fannst, ég var svolítið mikið drukkinn og var auðvitað bara skemmtilegust á svæðinu:) þynkan á sunnudeginum var samt ekkert til að hrópa húrra fyrir, ég held hreinlega að ég hafi aldrei upplifað aðra eins þynnku... ég ákvað svo að vera edrú á sunnudagskvöldið og vera hress og fín í herjólfi á mánudeginum, sem ég sá sko ekki eftir.

annars var gullmolinn okkar hjá ömmu sinni á meðan við fórum þarna yfir, og við vorum í stöðugu sambandi við þær, það gekk alveg eins og í sögu, mín bara ekkert erfið og hagaði sér eins og engill. takk mamma mín fyrir að hafa passað fyrir mig8) það var samt æðislegt að hitta hana aftur eftir þessa ferð, hún brosti allan hringinn og hló rosalega:haha:

svo í dag fórum við öll í brúðkaup hjá margréti frænku og óla (til hamingju dúllurnar mínar) það var rosalega gaman, æðislega falleg athöfn og vel heppnuð veisla. júlía var svo vær og góð allann tíman...

en þangað til næst....


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 22:05:01 / bubba

humm

jæja komin tími á nýja færslu, við júlía fórum í fyrradag að labba, löbbuðum niður laugaveginn og niður á tjörn með maríu og evu sól, það gáfum við bra bra brauð:) svo í gær löbbuðum við um grasagarðinn í góða veðrinu það var rosalega fínt, í dag kíktum við í kringluna með dísu og svo á rúntinn og í ikea með maríu og evu sól, svo komum við heim og hittum jóa og elduðum góðan mat og tókum svo alla íbúðina í gegn:) jói braut rakspíraglas (af hræðilegum rakspíra frá hirti) og íbúðin angar:( annars fórum við í bústaðinn síðustu helgi eða bara eina nótt, komum heim á laugardaginn, á laugardags nóttina kom köttur inn hérna og tók bleiku hekluðu peysuna hennar júlíu með sér út, ég fann hana úti í blómabeði... ansk köttur. ég vaknaði líka í fyrrinótt þá var þessi köttur komin upp í rúmið mitt og ég get svo svarið það að hann var á leiðinni ofaní vögguna hjá júlíu... ég elti hann fram alveg brjáluð, en hann náði að komast út:( ég veit ekki hvað ég hefði gert ef ég hefði náð honum. en ég bið að heilsa í bili...

og svo ALLIR að kvitta takk...


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 17:49:03 / bubba

hver var að tala um megrun?

Nú þegar líður að vori fara margir að hugsa um megrun fyrir sumarfríið.

Vandamálið með flesta megrunarkúra er að þú færð ekki nóg að borða (svelti

kúrinn), fæðið er of einhæft (bananakúrinn) eða þú ferð á hausinn

(nautalundakúrinn). Þetta hefur þær afleiðingar að fólk svindlar í

megruninni eða hættir eftir 3 daga. En nú hafa amerískir sérfræðingar

komið fram með smábarnakúrinn og íslenskir starfsbræður þeirra aðlagað'ann

okkar aðstæðum. Þú hefur tekið eftir því að öll tveggja ára börn eru

grönn. Nú er lykillinn að velgengni þeirra á þessu sviði öllum

aðgengilegur. Hafðu samband við lækni áður en þú byrjar á þessum kúr,

annars þarftu að fara til læknis að honum loknum. Gangi þér vel.



1. dagur.

Morgunmatur: Eitt hrært egg, ristuð brauðsneið með appelsínumarmelaði.

Borðaðu tvo bita af egginu, notaðu ekki gaffal, hentu restinni af egginu

á gólfið. Taktu einn bita af brauði, smyrðu síðan marmelaðinu yfir

andlitið og fötin þín.

Hádegi. Fjórir vaxlitir (hvaða litur sem er), handfylli af kartöfluflögum

og eitt mjólkurglas, drekktu 3 mjólkursopa og helltu restinni niður.

Kvöldmatur. Nagaðu blýantsstubb, gleyptu tvær krónur og gyllta tölu. 4

sopar af flötu Sprite.

Kvöldsnarl. Hentu ristaðri brauðsneið á eldhúsgólfið.

2. dagur.

Morgunmatur. Taktu brauðsneiðina frá því í gærkvöldi upp af

eldhúsgólfinu. Drekktu úr einu vanilludropaglasi og borðaðu eina túpu

af grænmetiskrafti.

Hádegi. Hálfur varalitur ?Pulsating Pink? og lófafylli af Purina hundamat

(valfrjálst bragð). Einn ísmola eftir vali.

Eftirmiðdagur. Sleiktu stóran sleikjó þar til hann verður klístraður,

farðu með hann út og misstu hann í drulluna. Taktu hann upp og sleiktu

hann þar til hann er hreinn aftur. Taktu hann þá inn aftur og misstu

hann á góða ullarmottu.

Kvöldmatur. Troddu litlum stein eða baun upp í vinstri nösina á þér.

Helltu applsínu-Svala yfir kartöflumús og borðaðu með skeið.

3. dagur

Morgun-matur: Tvær pönnu-kökur með miklu sýrópi, borðaðu aðra með

fingrunum, klesstu síðan fingrunum í há-rið á þér. Mjólkur-glas,

drekktu helminginn, settu hina pönnu-kökuna ofan í glasið. Eftir

morgun-mat skaltu taka sleikjóinn upp af ullarmottunninni, sleikja af

kuskið og setja síðan sleikjóinn á setuna á góðum hæginda-stól.

Hádegi. Þrjár eldspýtur, hnetusmjörs- og sultusamloka. Hræktu nokkrum

bitum af henni á gólfið. Helltu mjólkurglasi á borðið og sötraðu það

upp.

Kvöldmatur. Taktu upp brauð-sneiðina frá því í gærkvöldi og fáðu þér einn

bita. Full skál af ís, lófafylli af kartöfluflögum, dálítið af rauðu

púnsi. Reyndu að láta eitthvað af púnsinu frussast út um nasirnar á

þér.

4. dagur.

Morgunmatur. Fjórðungur af tannkremstúpu, gerðin skiptir ekki máli, biti

af handsápu, ein ólífa. Helltu mjólkurglasi yfir kornflöguskál og

hálfan bolla af sykri. Þegar korn-flögurnar eru gegnumblautar, drekktu

þá mjólkina og gefðu hundinum kornflögurnar.

Hádegi. Borðaðu brauðmola af eldhús- og borðstofugólfinu. Finndu

sleikjóinn og kláraðu hann.

Kvöldmatur. Glas af spaghetti og kakómalti. Skildu kjötbolluna eftir á

diskinum. Smávegis augnbrúnalitur í eftirrétt.

>>ÞETTA KLIKKAR EKKI EF ÞÚ FYLGIR FYRIRMÆLUM KÚRSINS.

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 17:38:44 / bubba

nokkrir góðir

 guð var á leiðinni í sumar frí en vissi ekki hvert hann ætti að fara svo hann spyr englana hvert hann eigi að fara, ein engillinn svarar: af hverju ferðu ekki í frí á plánetuna jörð?
guð svarar: nei ég held nú ekki, fór þangað fyrir 2.þ árum síðan og barnaði konu og þeir eru en að tala um það.....

 

 Stórglæsileg og þrystin kona fór til kvensjukdómalæknis. Um leið
og læknirin leit á konuna gleymdi hann stétt sinni og stöðu hann
sagði konuni að afklæðast undir eins. Þegar að kona hafði gert
eins og læknirinn sagði byrjaði hann að strjúka mjaðmir hennar
munaðarfullur og spurði veistu hvað ég er að gera ,já sagði konan
stein hissa...

Þú ert að kanna hvort að ég sé með óeðlilega húðfrumubreytingu,
allveg rétt hjá þér, sagði læknirinn og byrjaði að föndra við
brjóstin á dömunni, en veistu hvað ég er að gera núna, spurði hann
rangeyður og stinnur, já svaraði konan aftur þú ert að leita af
hnúðum og hugsanlega krabbameini, hárrétt stundi læknirin
kinnarjóður. Hann bað konuna að beygja sig og byrjaði að hafa mök
við hana aftan frá, veistu hvað ég er að gera núna, sagði
læknirinn og augun í honum hringsérust,já sagði daman yfirveguð,þÚ
ERT AÐ VERÐA ÞÉR UM HERPES SEM AÐ ÉG ÆTLAÐI AÐ RÆÐA VIÐ ÞIG UM Í
UPPHAFI.



Einu sinni lenti kvenkyns heilasella á einhvern furðulegan hátt og af
einhverjum furðulegum ástæðum og eftir röð furðulegra tilviljana og mistaka
í því að fara inn í höfuð karlmanns. Hún synti aðeins um svæðið og litaðist
taugaóstyrk um en þarna var ekki nokkur hræða. Allt var tómt og kyrrðin var
þrúgandi. "Halló?" kallaði heilasellan..... en ekkert svar barst. "Er
einhver hérna?"
kallaði hún en enn heyrðist ekkert svar. Nú fór hún að verða hrædd og
kallaði hærra og hærra, en aldrei barst neitt svar. Nú var kvenkyns
heilasellan orðin logandi hrædd svo hún gargaði af öllum lífs og sálar
kröftum: "Halló! Er einhver hérna?" Þá heyrði hún rödd berast langt
að:
"Halló! Við erum allir hérna
niðri."

 Ekki brandari

Sígild uppskrift

Þú tekur einn pakka af venjulegu cheeriosi, opnar hann, gramsar vel og
vandlega oní honum til að vita hvort eitthvað stórhættulegt leikfang sé
ofaní (lífshættulegt ef gleypt er). Þegar það er búið nærðu í disk úr
diskaskápnum... ef hann er tómur eins og hjá mér þá gramsarðu ofarlega í
stóru uppvaskshrúguna í baðkarinu og finnur þar djúpan disk. Ath það er mjög
mikilvægt að diskurinn sé djúpur eins og skýrist seinna meir. Þú setur
diskinn á baðvigtina þína og hellir úr cheerios pakkanum nákvæmlega 100 g af
hringjum. Síðan ferðu í ísskápinn tekur út mjólkurfernu og þefar af henni.
Ferð inná bað og ælir og hellir síðan úr fernunni í vaskinn. Gramsar í
ísskápnum og af því að þú finnur enga fernu sem ekki er komin 2 mán fram
yfir tíma þá hleypurðu upp til Siggu á efri hæðinni og færð lánaðan hjá
henni mjólkurpott (lofar náttla að skila honum um leið og hinum 60 l sem þú
varst búinn að fá lánaða áður). Þegar þú kemur aftur niður til þín opnarðu
mjólkurfernuna og mælir út 1 dl af mjólk. Þurrkar vel og vandlega upp það
sem þú sullar útfyrir og hellir mjólkinni réttsælis yfir cheeriosið. Ath það
er mjög mikilvægt að hella þessu réttsælis svo að cheeriosið fari ekki öfugt
niður. Þarna kemur sko aðaltrykkið eins og ég benti á og er margoft búinn að
brenna mig á, ÞAÐ VERÐUR AÐ VERA DJÚPUR DISKUR annars flæðir mjólkin útaf
diskinum. Að þessu loknu dregurðu fram stofusófann og leitar vel og vandlega
í rykinu þar til þú finnur gamla skeið sem er búin að liggja þar síðan þú
eldaðir cheerios síðast ('62). Þurrkar þetta græna af skeiðinni og sest með
DJÚPA diskinn með réttinum í og borðar. Fyrir þá sem eru lengra komnir í
eldamennskunni og jafnvel húsmæðraskólagengnir hef ég heyrt að sniðugt sé að
sáldra 2 tsk af sykri yfir réttinn (réttsælis að sjálfsögðu) en ég hef því
miður ekki lagt í að prófa það ennþá.

Einnig má til hátíðarbrigða elda honní nött cheerios en þá notar maður pakka
af honní nött cheeriosi í staðinn. Það er heldur erfiðara þar sem honní
nöttið á það til að festast saman og getur gert erfiðara að hella úr
pakkanum nákvæmlega 100g.

 

 Tveir giftir sitja á barnum og eru að spjalla saman.
"Ég skil ekkert í þessu, í hvert skiptið sem ég fer heim af barnum þá slekk
ég á aðalljósunum á bílnum og læt hann renna hljóðlega inn í innkeyrsluna.
Ég passa að skella ekki hurðinni og læðist á sokkunum upp stigann, fer úr
fötunum áður en ég kem inní svefnherbergi og leggst varlega í rúmið. Samt
æpir konan mín á mig að ég eigi ekki að koma svona seint heim því ég veki
hana alltaf!"
"Iss" segir hinn. "Þú ert að gera þetta alveg vitlaust. Þegar ég fer Heim þá
stilli ég á háu ljósin þegar ég kem inn götuna og skransa inn í bílastæðið
og flauta. Ég skelli hurðinni og hleyp upp stigann, hossa mér uppí rúm, slæ
hana á rassinn og segi HVER ER GRAÐUR?" "Einhvern veginn þá þykist hún
alltaf vera sofandi."

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 18:02:39 / bubba

ekki minn dagur:(

ohh ég lenti í því að kortinu mínu var stolið á laugardagskvöldið og það var þurrkað út af því, það var notað ítrekað á barnum á pravda og svo var tekinn leigubíll, ég lét rekja túrinn hjá leigubílnum og þá mundi hann eftir fólkinu sem voru 3 pólverjar, einn karlmaður og 2 konur. ég er búin að kæra og tala við bankann, og til að fá þetta endurgreitt þá þarf að fá kvittanirnar sem sá sem stal kortinu skrifaði á og bera saman undirskriftirnar... en núna er pravda brunnið og allar kvittanirnar líka þannig að ég fæ þetta ábyggilega ekkert endurgreitt:(
afhverju getur fólk ekki litið á kortin þegar það er að afgreiða, ég líkist ekkert einhverjum pólverjum og ber mjög svo íslenst nafn:(

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 21:03:13 / bubba

kvöldmaturinn í vaskinn:(

ég var svo búin að hlakka til að fá mér lambakótelettur í raspi, er búin að gera allt klárt nema kjötið og þegar ég opna báða pakkana þá kemur þessi líka ýldulykt á móti mér (keypt í fyrradag og síðasti neisludagur 11 apríl) oj hrollur. en þá verður maður að redda sér, fiskibollur í dós er víst það eina sem er til í skápnum en ekkert með þeim, þannig að það var hlaupið í 10-11 og viti menn það er ekkert til þar, þá meina ég ekkert, ekki hrísgrjón né hvítlauksbrauð eða neitt. það var ekki einusinni til neitt til að hafa í staðinn, kjötborðið alveg tómt, einn pakki af kjúklingabringum sem mér langar bara ekkert í og svo er greys að byrja og ég hef ekki tíma til að fara neitt annað:( djö... skal ég fara í búðina á morgun og kasta þessum kótelettum í andlitið á verslunnarstjóranum...

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.03.2007 18:42:04 / bubba

komin á barnaland

jæja þá erum við komin á barnaland http://www.barnaland.is/barn/60521/ endilega kíkjið og kvittið í gestabókina:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 19:33:11 / bubba

jæja allir að svara

 

1. Hefuru slegið einhvern í andlitið?
2. Hve gamall/gömul ertu
3. Frátekin/n eða einhleyp(ur) ?
4. Borðaru með höndunum eða notaru áhöld?
5. Dreymir þig á nóttunni?
6. Hefuru séð lík?
7. Hefuru óskað þess að einhver deyji?
8. Ertu að fíla Gogga Bush?
Nú þegar stöðluðu spurningarnar eru búnar, byrjum á góða stöffinu.
9. Hvaða speki hefuru á lífinu? Tekuru því of alvarlega?
10. Ef þú mættir gera hvað sem er með mér án þess að neinn fengi að vita af því.    Hvað myndi það vera?
11. Treystiru lögreglunni?
12. Hlustaru á kántrí?
13. Hvað er þín besta minning sem þú átt með mér?
14. Ef þú gætir breytt einhverju í fari þínu, hvað myndi það vera?
15. Myndiru deita mig?
16. Í hverju sefuru?
17. Hefuru pissað í sundlaug á meðan þú ert ennþá að synda?
18. Myndiru fela sönnunargögn fyrir mig ?
19. Ef ég myndi deyja á morgun. Hvað myndir ÞÚ gera með mér í dag?
20. Hvað finnst þér best um mig?
21. Er ég hot?
22. Hvað er uppáháldsliturinn þinn?
23. Ef þú gætir vakið eina mannveru til lífsins frá dauðum, hver myndi það vera?
24. Segðu mér eina heimskulega / tilgangslausa staðreynd um þig.
25. Muntu endurpósta þessu svo ég geti svarað þér?


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 00:31:58 / bubba

letidagur

jæja, það er mest lítið að frétta af okkur, við fórum í dag í heimsókn til langömmu (ömmu hans jóa) og stubba svaf bara allan tímann vildi varla opna augun til að leifa ömmunni að sjá:) hún er búin að vera rosalega þreytt í dag enda svaf hún illa í nótt, var með í maganum greyið. ég kenni saltkjötinu um sem ég borðaði í gær;) en annars bakkaði einhver gaur á bílinn okkar. reyndar sést ekkert mikið á honum aðeins smá rispa og brotið ljós, en hann ætlar að koma með tjónaskýrsluna á morgun þannig að það er allt í lagi.

sigga og óli komu svo í heimsókn áðan annars hefur ekkert merkilegt gerst bara þetta sama gamla:(

see-ja l8er


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 14:37:37 / bubba

hún er komin:)

jæja, það er búið að vera svolítið mikið að gera hjá okkur en litla prinsessan er loksins komin í heiminn, hún fæddist þann 13 mars klukkan 16:10 og var 3015gr (12 merkur) og 49cm. fæðingin tók aðeins 2 og hálfan tíma frá fyrstu verkjum en ég var sett af stað.

ég á eftir að reyna að vera dugleg við að skrifa hérna inn nýjustu fréttir og svona en þangað til næst see-ja l8er

 

ps. fyrir ykkur sem eruð alltaf að spyrja þá nei ég er ekki með barnalandssíðu:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 20:10:50 / bubba

í dag er dagurinn

Jæja þá er það þessi dagur, dagurinn sem ég er sett 9.mars jey, það versta er að hún litlan mín ætlar sko að láta bíða eftir sér, allir í fjölskyldunni farnir að hringja á hverjum degi að spyrja frétta en það er sko eitthvað minna um þær... Ég held að það séu allir orðnir spenntari en ég, og ég er sko spennt, mamma fær líka símhringingar frá allri ættinni, það vilja allir fá fréttir, þó hún sé búin að lofa öllum að hún muni hringja um leið og eitthvað gerist:) Svona er þetta víst þegar 1 barnabarnið og barnabarnabarnið er á leiðinni hehe. Ég er búin að gera allt tilbúið fyrir komu litlu prinsessurnar eða meira ég og mamma:) hún er sko búin að vera æðisleg, gæti ekki hugsað mér að ganga í gegnum þetta allt saman án hennar mömmu, hún þvoði helmingin af fötunum fyrir mig og er svo alltaf að kaupa hitt og þetta sem vantar, svo vaktar hún símann sinn allan sólahringinn, það má varla senda henni sms án þess að hún fái í magann, alveg viss um að nú sé eitthvað að fara gerast:) Annars var ég nú nokkuð viss um að það væri eitthvað að gerast í gær, liðu ekki nema 2-4 mín á milli verkja, þeir voru samt ekki nógu ''vondir'' en ég hringdi uppá fæðingargang og þær buðu mér að koma í skoðun, þær voru ekki alveg vissar hvort þær ættu að halda mér eða senda okkur heim, svo var ákveðið að senda mig heim. En ég er komin með 2-3 í útvíkkun og var með nokkuð reglulega samdrætti sem duttu svo niður í dag, fór í monator eftir hádegið og það mældist ekki einn samdráttur og litlan vildi sko bara sofa og var ekkert hrifin af ljósunum sem voru alltaf að vekja hana til að fá eitthvað almennilegt rit. En það kom allt vel út á endanum:) nú er bara að bíða og sjá hvort hún ætli ekki að fara að láta sjá sig:)
Þið megið endilega krossa fingurna (og tærnar líka) fyrir mig og vona að biðin verði ekki lengri hjá okkur og að allt gangi vel.
Takk fyrir mig kveðja bubba

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 18:20:51 / bubba

tókst að setja inn nýjar myndir af bumbunni minni.

mér tókst að setja inn 2 nýjar myndir:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.01.2007 00:33:01 / bubba

ónýtt

þetta dót er ónýtt, ég er alltaf að skrifa og skrifa og það kemur ekkert inn:(

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Myndasöfn